Vitiði bara hvað. Ég fann eina litla og sæta tönnslu uppí henni
Köru minni á miðvikudaginn. Hún náttúrulega lang sætust. Þetta var
ekkert smá skrítið þegar ég fann hana, fór unaðsleg tilfining um
líkamann minn, og ég nottlega gaf henni pening og kyssti hana alveg
milljón... 
Annars er voða lítið að frétta af okkur familíunni, jú get
kannski sagt ykkur það að við erum kannski að fara að flytja í
janúar í sveitina... það er samt ekki alveg búið að festa það,
þetta er svona í umræðunni.
Haldiði að ég hafi ekki skellt mér á showið með Guðrúnu
Gunnars og Friðriki Ómar á Brodway í gærkvöldi. ÓMÆGAD hvað það var
flott, ég bara slefaði yfir ÖLLU, nema kannski byrjunar atriðinu,
þar voru tvenn danspör, og í einni lyftuni missti annar gaurinn
dansfélagann sinn, en hún slasaðist ekkert. Þetta var líka kannski
pínu fyndið, því eins og flestir vita (sem kannski lesa þetta) þá
get ég verið kvikindi bwahaha 
En er að fara að gera mig sæta fyrir afmælið hjá Ömmu minni.
bæó spæjó.
Arna Lind sem er án efa flottasta mamman í bænum 